-
Aðgangur er veittur að uppflettingum að Vinnuvélaskrá skv. samningi Advania við Vinnueftirlit ríkisins.
-
Áskrifendur gera samning við Advania um að fá upplýsingar úr Upplýsingaheimum. Þær upplýsingar eru veittar skv. starfsreglum Vinnueftirlits ríkisins.
-
Áskrifandi fær aðgang að Upplýsingaheimum Advania og/eða vefþjónustu.. Greitt er fyrir notkun á Vinnuvélaskrá skv. verðskrá Advania. Verðskráin skal ávallt liggja fyrir og vera öllum ljós á heimasíðu Upplýsingaheima.
-
Áskrifanda er heimilt að skrá upplýsingar úr Vinnuvélaskrá í eigið kerfi eftir því sem við á en óheimilt er að safna þeim í sérstakan gagnagrunn.
-
Ekki er heimilt að breyta upplýsingum úr Vinnuvélaskrá.
-
Áskrifanda er aðeins heimilt að nota upplýsingarnar í eigin þágu en óheimilt er að miðla þeim til þriðja aðila eða birta þær opinberlega nema með sérstöku leyfi Vinnueftirlits ríkisins.
-
Advania er heimilt að fella niður aðgang áskrifanda að Upplýsingaheimum án fyrirvara, komi í ljós vanefndir á skyldum vegna aðgangs eða misnotkun upplýsinga úr Upplýsingaheimum af hálfu áskrifanda.
-
Samnýting aðgangsauðkenna er óheimil. Þeir starfsmenn áskrifanda sem eiga að fá aðgang að Upplýsingaheimum skulu allir hafa eigin aðgangsauðkenni. Verði breytingar á notendum skulu þær tilkynntar jafn fljótt og auðið er til Þjónustuborðs Advania.
-
Öll notkun er skráð. Advania mun ekki nota persónulegar upplýsingar á neinn annan hátt en til að veita upplýsingar til greiðanda aðgangs (fyrirtækisins ) um uppflettingu í skránni sé þess óskað.
-
Við staðfestingu á þessum skilmálum er áskrift stofnuð og rukkast mánaðarlega föst mánaðargjöld ásamt uppflettigjöldum. Þó svo ekki sé flett mun fast mánaðargjald ávallt rukkast þar til þjónustu er sagt upp.
-
Samningur þessi gildir frá staðfestingu hans.
-
Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðarmót. Mánaðargjöld greiðast fyrir þann mánuð sem uppsögn berst og notkun innan mánaðarins.
-
Áskrifendur skulu kynna sér reglur Vinnueftirlits ríkisins um notkun á upplýsingum úr Vinnuvélaskrá.